Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

foss

Þróun, framleiðsla, tækjaleiga og viðburðastjórn

Mikil reynsla liggur hjá starfsfólki Pegasus á sviði framleiðslu og samframleiðslu auglýsinga og viðburða fyrir erlend framleiðslufyrirtæki og auglýsingastofur í umboði stærstu fyrirtækja heims. Innistæðan í sameiginlegum reynslubanka samheldins hóps tryggir árangursríka vinnu sem stendur undir miklum kröfum og væntingum innlends markaðar.

Leikstjórar okkar hafa unnið til verðlauna fyrir vinnu sína og hlotið margskonar viðurkenningu erlendis fyrir störf sín við innlend sem erlend verkefni.

Tækjaleigan útvegar allt sem þarf til framleiðslu stórra sem smárra verkefna hvort sem um er að ræða kvikmyndir, sjónvarpsefni eða auglýsingar.

Öturlega er unnið að þróun kvikmyndahandrita hjá fyrirtækinu.

 
 

Tækjaleiga til kvikmynda og auglýsingagerðar

Stjórnun viðburða fyrir fyrirtæki

 
 
 
efnisyfirlit síðunnar